|
Uppistands Video (innlent download)
|
|
| |
Sigur í uppistandskeppni í Kanada (33MB, góð gæði)
Þetta er video frá því ég tók þátt í fyrstu lotu af "Great Canadian Laugh off" á YukYuk´s klúbbnum í Ottawa
í Kanada. Ég sigraði í þessari keppni og mun halda áfram í úrslit Ottawa klúbbsins í október.
Laminn með stól (5,6MB, góð gæði)
Þetta video er tekið af uppistandi sem ég var með sem hluta af skemmtun í Montreal.
Þarna er sýndur endirinn á uppistandinu, þar sem ég móðgaði stelpu nokkra svo mikið að
hún kom upp á svið og lamdi mig með stól.
Kartöflugeymslan live (10MB, góð gæði)
Þarna erum ég og Bjarni Töframaður að grínast á sviði. Síðan spilar hann undir hjá mér
meðan ég syng kartöflugeymslu lagið
|
|
|
Video Sketch (innlent download)
|
|
Kynfræðsla í 9.bekk
Það getur tekið á að vera kennari. Sérstaklega ef þú þarft að kenna þrjátíu flissandi
gelgjum í 9.bekk kynfræðslu. Sem betur fer ertu samt með þetta líka fína video frá
Námsgagnastofnun, sem mun fræða gelgjurnar um allt sem þær þurfa að vita um kynlíf.
Venjuleg gæði (3,6MB)
|
|
| |
|
| |
Kyssiparið
Það er fátt eins leiðinlegt og að vera þriðja hjól, sérstaklega hjá svona pari sem þarf stanslaust
að vera slefandi uppi í hvort annað. Hvað getur maður gert í svona óþolandi aðstöðu? Á maður
að segja vini sínum og kærustunni að þetta fari í taugarnar á þér, eða þarf eitthvað annað og
meira til að slefan slitni á milli þeirra?
Venjuleg gæði (6,4MB)
|
|
|
|
|