| |
Sannleikshornið
Þetta er sannleikshornið, sem samanstendur
af alls kyns lygum. Allar fréttir í sannleikshorninu eru lognar upp, en kunna
af og til að innihalda einhverskonar sannleika, þó sá sannleiki hafi þó aldrei
mikið með raunveruleikann að gera.
Efni sannleikshornsins kann hæglega að móðga þig og þá
er um að gera að þú vorkennir þér sem mest, því við munum ekki gera það.
Sannleikshornið: þar sem sannleikinn er úti í horni.
|
|
|

Séra Flóki segir að jólasveinninn sé ekki til (Rökkvi des 2005)
Séra Flóki hefur nú tekið að sér að segja börnum í sunnudagaskólanum að jólasveinninn sé ekki til.
Við hjá lágmenning.is ákváðum að sjálfsögðu að grennslast fyrir um þetta mál.
"Þetta er svívyrðilegt!", sagði fjölskylufaðir nokkur sem var frávita af bræði. "Séra Flóki
segist ekki vilja ljúga að börnum, en til hvers heldur hann þá eiginlega að við séum að senda
þau í sunnudagaskóla?" "Það er náttúrulega gott mál að láta bulla þetta yfir þeim um guð, svo
að maður geti síðan sagt þeim seinna að þau fari til helvítis ef þau eru óþæg og að guð sjái
hvað þau eru að gera þegar þau eru að gera einhver skammarstrik á bak við mann, en það er bara
ekki nóg", hélt fjölskyldufaðirinn áfram, "það að geta sagt krakkaskröttunum að jólasveinninn gefi
þeim kartöflu
í skóinn ef þau óhlýðnist og að Grýla éti þau er alveg ómissandi þáttur uppeldinu, sem Séra Flóki
er núna búinn að eyðileggja fyrir mér. Hvernig á ég núna að ala upp börnin mín á sómasamlegan hátt?"
Séra Flóki var nú ekki lengi að svara þessum ásökunum. "Ég hef sko ekkert á móti því að ljúga að
börnum. Það er nú einu sinni vinnan mína að ljúga að fólki daginn út og daginn inn og segja þeim
eldgamlar bullsögur. Ég fæ hins vegar bara borgað fyrir að ljúga að guð og jesú séu til, ekki
jólasveinninn. Ef ég á að ljúga því að jólasveinninn sé til líka, geta þau alveg drullast til
að borga mér fyrir það líka, þetta gyðingapakk - það er ekki eins og ég sé á einhverjum
bankastjóralaunum eða neitt. Annars skal ég líka alveg hætta sem prestur - ef ég fæ
starfslokasamning upp á 130 milljónir!"
|

Píkuþrælahald bannað með lögum (Rökkvi 2005)
|
Píkuþrælahald hefur nú verið gert ólöglegt á Íslandi og hvers kyns píkuþrælkun er nú
bönnuð með lögum. Maskúlínistafélag Íslands, sem til þessa hefur óspart barist fyrir
(karl)mannréttindum á landinu fagnaði nýju lögunum óspart í dag. "Þetta er stór sigur fyrir okkur
karlmenn", sagði Carl R. Embus Wien, formaður Maskúlínistafélags Þýskalands, "ég er upp með mér
að Íslendingar hafi nú náð sama áfanga og okkur hefur tekist í Þýskalandi." Karl R. Emban, formaður
Maskúlínistafélags Íslands, var heldur ekkert að leyna hamingju sinni, "Það var í raun fárálegt
að leyfa píkuþrælahald, úr því að almennt þrælahald hefur verið ólöglegt árhundruðum saman næstum því.
Ég hef aldrei skilið af hverju þessi ákveðna tegund þrælahalds fékk að lifa áfram óáreitt, en nú
er það myrka tímabil í sögu okkar yfirstaðið.!"
Lögin banna alla píkuþrælkun á Íslandi, svo sem að nölda yfir því að eiginmaður/kærasti ætli
út með vinum sínum, láta hann koma með sér á tupperwave kynningar, láta hann horfa á Sex and the
city með sér, segja að það sé barnalegt að horfa á Star Wars / keyra í torfærum á jeppanum sínum
/ láta eins og maður sé ennþá 6 ára, heimta að hann geri húsverk eða að bara kúra þegar hann vill ríða.
Karl R. lýsti yfir ánægju sinni með það að slík niðurlæging og misnotkun á karlmönnum væri nú ólögleg.
Reðuröfund, félag róttækra femínista á Íslandi mótmælti þessu hins vegar harkalega og sögðu að þetta
væri "Fáránlegt karlrembu rugl", "Afturhvarf til steinaldarhugsunarhátts" og "Hneyksli." Karl lýsti
þessum athugasemdum femínsitanna algerlega á bug, sagði þær þröngsýnar og ómálefnalegar, auk þess sem
femínistum gæti nú verið slétt sama hvort sem er, þær væru hvort eð allar lessur.
Hér sést mynd af píkuþræl sem nú hefur verið frelsaður
(Efst í greininni má einmitt sjá eitt af þeim niðurlægjandi áróðursspjöldum sem bönnuð hafa verið
með lögum)
|
Betarokk heiðruð af forsetanum (Rökkvi 2005)
|
Betarokk hefur hlotið baráttuverðlaun forseta Íslands í ár. Baráttuverðlaun forseta
Íslands eru veitt árlega til einstaklinga sem hafa sigrast á ógurlegum erfiðleikum,
sjúkleikum eða einstaklega erfiðum aðstæðum en samt náð að láta drauma sína rætast.
"Þeir sem hljóta þessa viðurkenningu eru einstaklingar sem virkilega hafa sigrast á
aðstæðum sem yfirleitt myndu yfirbuga venjulegt fólk og náð að virkilega brillera á sínu
sviði engu að síður. Þeir sem hljóta þessa viðurkenningu eru innblástur og hvatning fyrir allt fólk
sem lifir við mikla erfiðleika að gefast ekki upp", sagði forseti vor við afhendingarathöfnina. | |

Áhorfendur sem fygldust með verðlaunaafhendingunni
í beinni fögnuðu óspart |
Betarokk hefur eins og öllum er kunnugt þjáðst af alvarlegu hæfileikaleysi allt frá því að
hún fæddist. Hún var hins vegar dæmi um konu sem hélt alltaf áfram að berjast, gafst
aldrei upp og náði loksins mikilli frægð og frama á Íslandi. Betarokk varð fræg fyrir
rithöfundastörf, tónlist, blogg og marga fleiri hluti sem hún er gersamlega hæfileikalaus
í. "Þetta er álíka tilkomumikið eins og ef að þroskaheftur maður myndi ná að verða
heimsmeistari í skák" sagði forsetinn.
Betarokk hafði þetta að segja: "Ég er stolt af því að vera fyrirmynd fyrir allt hæfileikalaust fólk
á Íslandi sem er að reyna að meika það." Örvar Freysson, öryrki sem nýlega fór hringinn í kringum landið
í hjólastólnum sínum án nokkurrar hjálpar, var lítillega svekktur með að fá ekki verðlaunin, en viðurkenndi þó að Betarokk ætti þau
meira skilið en hann.
|
Rosalega fínn strákur læknast (Rökkvi 2004)
|
Guðmundur Guðmundsson, 32ja ára Íslenskur karlmaður hefur undirgegnist stranga meðferð og
er ekki rosalega fínn strákur lengur. "Þetta er mikill léttir og líf mitt hefur svo sannarlega batnað til
hins betra eftir þetta", segir Guðmundur, sem er aldeilis í sjöunda himni yfir þeim framförum sem hann náði
í meðferðinni. Guðmundur lýsir vanda sínum á þennan hátt:
"Ég var búinn að vera rosalega fínn strákur alveg frá því í gagnfræðiskóla og það var mikið eymdarástand.
Ég var alltaf mjög góður vinur allra stelpnanna og hlusaði á allt sem þær sögðu. Ég hafði alltaf áhuga þegar þær
töluðu um tilfinningar sínar og vandamál við mig. Ég fékk þar af leiðandi aldrei á broddinn. Þegar þær sögðu við mig að
ég væri rosalega fínn strákur, eða rosalega góður strákur og þess háttar hluti, hélt ég alltaf að það væri hrós.
Ég gerði mér ekki grein fyrir að þær væru að segja mér að ég ætti við vandamál að stríða. Þetta er svona svipað og
þegar drykkjusjúklingi er sagt að hann sé alkóhólisti, en hann er í of mikilli afneitun til að skilja það."
Guðmundur lýsir því hvernig hann læknaðist af sjúkleikanum.
| |

|
"Ég var orðinn 31 árs og hafði aldrei stundað kynlíf þegar ég rakst á gamlan félaga minn úr Háskólanum, sem hafði
ekki hitt í 8 ár. Hann hafði heldur aldrei fengið á broddinn þegar við vorum saman í HÍ, en þegar við hittumst
í fyrra, trúði hann mér fyrir því að hann hefði farið á þetta frábæra námskeið og væri núna byrjaður að skora eins
og vitleysingur."
"Það varð því úr að ég fór á sjálfshjálparnámskeið á vegum Maskúlínistafélags Íslands. Þar var mér kennt að
horfa á kvenfólk eins og hluti, en ekki manneskjur. Síðan var ég látinn í raflostsmeðferð á meðan ég var látinn
horfa á kvenfólk tala um tilfinningar sínar og vandamál, þangað til að mér fór að finnast svoleiðis óþolandi.
Ég er búinn að vera hreinn í heilt ár núna. Ég hef ekki hlustað á konu tala um tilfinningaleg
málefni síðan ég kom úr meðferðinni og ekki sýnt samúð með neinum vandamálum neinnar konu síðan þá."
"Það er liðin tíð að konur kalli mig rosalega fínan strák. Núna segja þær að ég sé drulluskokkur og aumingi, en
það er yfirleitt ekki fyrr en eftir að þær eru búnar að sofa hjá mér! Ég er frelsaður og loksins farinn að
fá á broddinn. Þó að Maskúlínistafélag Íslands bjóði líka upp á fyglinámskeiðið "Lækkaðu staðlana" fyrir þá
karlmenn sem samt ekki geta fengið á broddinn eftir "Lærðu að hlutgera konur" námskeiðið sem ég fór á, þá þurfti
ég þess ekki, því ég er ríkur eftir að hafa verið einhleypur í góðri stöðu í mörg ár. Líf mitt er yndislegt!"
Sannleikshornið óskar Guðmundi til hamingju með að sigrast á ástandi sínu.
|
Þjóðin er vanhæf! (Rökkvi 2004)
Hans heilagleiki Davíð Oddson benti á það í dag að þjóðin er gersamlega vanhæf til
þjóðaratkvæðagreiðslu gegn fjölmiðlafrumvarpinu, auk þess sem hún er bara vanhæf til
að vera ósammála honum yfirleitt.
Davíð benti á það að fjöldi þeirra Íslendinga sem hefðu unnið hjá Norðurljósum, eða fyrir Baug,
væri sláandi. "Ykkur myndi svima við að vita hversu margir Íslendingar hafa unnið á kassa í
Bónus" sagði Davíð. Þar sem allir Íslendingar eru skyldir í a.m.k. sjöunda ættlið, eiga allir
Íslendingar fjöldann allan af ættingjum sem hafa unnið fyrir Norðurljós eða Baug og eru því
gersamlega vanhæfir til að kjósa um fjölmiðlafrumvarpið.
Davíð bætti einnig við að þjóðin væri ennfremur vanhæf vegna þess hversu mörgum Íslendingum
hefði þótt gaman af að horfa á Stöð 2 í gegnum tíðina, eða lesa fréttablaðið og hversu mörgum
hefði þótt "Opinberun Hannesar" leiðinleg. "Þess vegna er þjóðin bara að stjórnast af
tilfinningarökum þegar hún tjáir sig í þessu máli", bætti Davíð við.
Davíð ætlar því að leggja fram vantrauststillögu á þjóðina á þinginu innan skamms. Sigurður Kári
fagnaði rökum Davíðs óspart, því þó hann sé sjálfur stundum vanhæfur til hluta eins og að keyra bíl,
eða halda vatni fyrir hrifningu þegar Davíð talar, þá er hann vel þekktur fyrir hæfni sína til að
sleikja .......
|
Alþingismenn taka þátt í auglýsingaherferðum (Rökkvi 2004)
|
Vegna þess hversu bágt alþingismenn eiga að vera með svona lág laun (og þá sér í lagi
ömurleg eftirlaunakjör) og líka vegna þess hversu erfitt það er fyrir þá að fá neina vinnu þegar þeir
hætta, hafa margir þeirra tekið upp nýtt ráð til að drýgja tekjurnar. Margir alþingismenn
eru nefnilega farnir að taka að sér að leika í auglýsingum hinna ýmsu fyrirtækja hér á landi.
Þar má helst nefna Davíð Oddsson, sem hefur tekið að sér að auglýsa reglustrikur frá Griffli,
Geir H. Haarde, sem auglýsir fiskveiðiár víðsvegar um landið, Ingibjörgu Sólrúnu sem auglýsir
bílaumboðið Heklu og Sigurð Kára sem tekið hefur að sér að auglýsa Tuborg, Carlsberg, Smirnoff,
Finlandia, Bacardi og ýmsar fleiri vörur sem ekki er pláss til að telja upp hérna.
Sumir leiðindapúkar hafa verið að setja út á þetta og segja að þetta sé siðferðislega rangt,
en okkur er náttúrulega nær að búa þingmönnum okkar svona ömurleg kjör. Össur Skarphéðinsson
var eini þingmaðurinn sem nennti að svara þessum bjánalegu ásökunum:
| |

Össur ber af hvað varðar siðferði þingmanna |
"Vissulega finnst mér þetta vítaverð hegðun hjá þessum þingmönnum, að selja sig svona," sagði Össur,
"en ég vil
taka fram í fyrsta lagi að Ingibjörg Sólrún er ekki þingmaður og er því stikkfrí af þessu öllu.
Síðan vil ég líka taka fram að ég er sjálfur á siðferðislega mun hærra plani en þessir hinir
þingmenn, sem eru að láta freistast af gróðatækifærum með því að leika í svona auglýsingum.
Mér bauðst nefnilega há fjárhæð frá Skífunni til að auglýsa single-diskinn í búðunum þeirra með
laginu "You ain´t seen nothing yet" með hljómsveitinni Bachman Turner Overdrive, en ég þverneitaði
því tilboði!."
|
Markús Örn aftur kærður ! (Rökkvi 2004)
Rétt eftir að sleppa úr réttarsalnum hefur Markúsi Erni Antonssyni verið stefnt fyrir rétt.
Stefnandinn er í þetta sinn hann Viktor, eiginmaður Leoncie, en hann hefur kært Markús fyrir
að halda við eiginkonu sína, í kjölfar þessarar fréttar.
"Þetta er misskilningur" hrópaði
Markús örvæntingarfullur í viðtali við okkur. "Hvað get ég gert að því að DV setji greinarnar
sínar upp svona asnalega? Ég sver að mér myndi aldrei detta í hug að halda við umrædda kvenpersónu,
ég er siðsamur maður að öllu leiti, fyrir utan þetta eina skipti sem ég sagði nokkra klámbrandara í
áramótafrumvarpinu mínu... úps, ekki hafa þetta eftir mér."
|
Kærumál gegn Markúsi Erni vafðist fyrir dómsstólum (Rökkvi 2004)
Kæra gegn Markúsi Erni Antonssyni, útvarpsstjóra var rétt í þessu felld niður
fyrir héraðsdómi vegna skorts á sönnunargöngum. Það var Elín Líf Helgadóttir, 71 árs húsmóðir
úr Vesturbænum sem kærði Markús fyrir klámfengið og sóðalegt orðbragð í fjölmiðlum.
Elín fullyrðir að Markús hafi lesið upp fimm klámvísur og sagt fjölda grófra klámbrandara
í áramótaávarpi sínu hinn 31.des síðasta árs.
Málið var látið niður falla vegna skorts á
sönnunargöngum, þar sem dómstólum tókst ekki að hafa uppi á neinum öðrum en Elínu, sem
hlustað höfðu á áramótaávarp útvarpsstjórans.
|
Davíð Oddsson sannar skaðsemi kommúnismans (Rökkvi 2004)
Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur nú náð þeim árangri að sanna fyrir fullt
og allt að kommúnismi er vond pólitísk stefna. "Það vissu þetta svo sem allir
fyrir" sagði Davíð "en það var ekki búið að sanna þetta ótvírætt fyrr en nú."
Sönnunina fékk Davíð með að sýna í verki hversu skaðlegur kommúnisminn er.
Eins
og allir vita gengur kommúnismi út á það að ríkið stjórni nánast öllu í landinu.
"Nú þar sem ég er sjálfur forsætisráðherra og æðsti embættismaður ríkissins, samdi
ég sjálfur sögu, lét vin minn gera kvikmyndahandrit úr henni og lét ríkið síðan borga
fyrir myndina. Eins og þið öll sáuð leiddi þetta til algerrar hörmungar. Þetta sannar
náttúrulega endanlega að svona hlutir eiga að vera í höndum einstaklinga og að kommúnisminn
sökkar feitan."
Þessu framlagi Davíðs var einkar vel fagnað af frjálshyggjuarmi
Sjálfstæðisflokksins, sem ýmsir hverjir vöknuðu jafnt um augun sem og buxurnar, allt af einskærri
hrifningu.
|
Þreyttir en ánægðir... (Júlíana Kristín 2004)
|
Þeir Lúðvík Huppason og Konráð Brjánn Sigurdórsson eru hamingjusamir menn. Þeir eru báðir nýkomnir
á sextugsaldurinn og nýkomnir útúr skápnum eftir mörg ár þar inni.
"-Já, við eyddum mörgum árum saman inní þessum fjárans skáp!" Sagði Lúðvík aðspurður um
veruna inní skápnum. "-Þetta var assgoti þröngt og óþægilegt en við höfðum þó hvorn annan
til að styðjast við og elska." Sagði Konráð við sömu spurningu og leit heitfengnum augum til
Lúðvíks. Þessir menn hafa greinilega tengst nánum böndum eftir að hafa eytt tíma inní skáp saman.
Þegar að ég spurði piltana um hvað þeir hefðu haft fyrir stafni inní skápnum þá urðu þeir
hálfkindarlegir á svipinn og vildu sem fæst segja enda voru þeir orðnir þreyttir og vildu
komast sem fyrst í bólið. "Við erum þreyttir en ánægðir..." Sagði Lúðvík að lokum og
tiplaði léttfættur á eftir félaga sínum inní svefnherbergið, enda eftir miklu að slægjast þar á bæ.
| |

Lúðvík og Konráð á góðri stundu. |
Fréttablaðið fimmtudaginn 15.jan 2004 bls.20
Gísli Baldvinsson námsráðgjafi skrifar um Hannes Hólmstein:
"... ég er reiðubúinn til að fórna lífi mínu fyrir að hann fái að hafa skoðun."
Námsráðgjafi tekinn af lífi fyrir skoðanir Hannesar (Uxaskalli 2004)
Ónafngreindur námsráðgjafi var tekinn af lífi seinni partinn í dag vegna
skrifa og skoðana Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar, samkvæmt
tilkynningu frá ríkislögreglustjóra. "Hannes hefur ákaflega sterkar
skoðanir og er mjög iðinn við að láta á sér bera", segir Gylfi
Bertelsson, blaðafulltrúi ríkislögreglustjóra. "Þetta gjamm í honum
Hannesi hefur farið fyrir brjóstið á mörgum þannig að það hreinlega varð
eitthvað undan að láta."
Lausnin á þessu máli kom svo óvænt með Fréttablaðinu í morgun þar sem
námsráðgjafinn skrifaði lesendabréf og bauðst til þess að láta lífið
fyrir rétt Hannesar til að hafa skoðanir og tjá sig um þær. "Þarna var
allt í einu komin leið til að ganga frá þessum málum á snyrtilegan hátt,
við hringdum í námsráðgjafann og hann mætti niður á stöð um 15 mínútum
síðar. Hann var svo hengdur og grafinn á mjög smekklegan máta. Nú ættu
allir að geta verið sáttir."
|
Vestmannaeyjar afhentar Dönum (Rökkvi 2003)
|
Í tilefni þess að fyrirliði danska kvennalandsliðsins í handbolta átti afmæli í gær, afhenti íslenska
ríkisstjórnin Dönum Vestmannaeyjar
að gjöf. Með þessu vildi ríkisstjórnin votta Dönum vináttu sína, en samt aðallega bara
losna við Vestmannaeyjar og nöldrið í fólkinu sem býr þar.
"Þeir eru alltaf röflandi um jarðgöng þetta heimtufreka pakk og þeir gerðu okkur Sjálfstæðismenn
að algerum fíflum með því að kjósa Árna Johnsen á þing" sagði Davíð Oddsson, forsætisráðherra.
"Danir eru nú vanir því að sitja uppi með Færeyinga og þeirra bull, þannig þeir ættu nú ekki
að kippa sér upp við að fá Vestmannaeyjar líka."
| |

Við erum laus við þetta sker |
Vestmannaeyingar hafa einnig fagnað þessum atburði óspart. "Nú getum við örugglega fengið
jarðgöngin okkar" sagði Lundi Sprangan, eyjaskeggi "Sjáiði bara hvernig Færeyingum tókst að
plata þá til að stjana undir rassinn á sér endalaust. Við ætlum sko ekki að fá minna frá Dönunum
en þeir." "Já við ætlum sko að byrja strax á að setja okkur á hausinn og láta Dani borga brúsann" sagði
Vestmannaeyingur sem
hefur sko migið í saltan sjó ólíkt ykkur aumingjunum í Reykjavík sem haldið að það sé vinna að sitja
við skrifborðið allan daginn. "Fyrst ætlum við t.d. að panta leikmenn frá NBA deildinni til að spila
með körfuboltaliði ÍBV, en svo er margt fleira sem við erum með planað. Þar með talið er náttúrulega að
fá jarðgöng yfir til Íslands, Færeyja og Grænlands og síðan kannski til Noregs, Danmerkur og Kanada þegar
á líður. Það eru góðir tímar í vændum fyrir Vestmannaeyjar."
Ekki hafa Vestmanneyingar neinar áhyggjur af óæskilegum dönsku áhrifum á mál þeirra, þar sem þeir tala nú
þegar mjög bjagaða íslensku. Til að nefna dæmi finnst íslenskufræðingum orðið "skidegodt" síst verri íslenska en
vestmanneyska orðið "gæjalegt" auk þess sem það er ekki heldur eins hommalegt orð.
|
Heimdellingur kýs ekki Davíð! (Rökkvi 2003)
Sá merki atburður átti sér stað í dag að Sveinn Kjardal, meðlimur
í Heimdalli og SUS, ákvað að kjósa ekki Davíð Oddsson, félögum sínum
til mikillar gremju. Réðust þeir á Svein og veittu honum alvarlega
áverka með Nokia farsímum sem þeir báru á sér. Sveinn liggur nú
á Landsspítalanum og er ekki talinn í lífshættu, því símarnir sem notaðir voru gegn
honum voru sem betur fer mjög litlir. Umrædd kosning var
um kynþokkafyllsta mann Íslands 2003, en það er árleg kosning sem útvarpsstöðin
Létthommalegt 96,7 stendur fyrir.
|
Man kosningaloforð 4 ár aftur í tímann ! (Rökkvi 2003)
Margeir Páll Valdimarsson er kvalinn maður á sálu og hjarta. Það vill honum nefnilega
til meins að hann getur munað kosningaloforð 4 ár aftur í tímann, eða sem nemur heilu
kjörtímabili. Margeir er eini Íslendingurinn sem vitað er að þjáist af þessum kvilla.
"Þetta er hræðilegt, ömurlegt!" segir Margeir. "Þið gætuð ekki ímyndað ykkur svekkelsið sem
ég upplifi í hverri einustu kosningabaráttu og vonbrigðin sem ég verð fyrir við að horfa
á kosningarnar
sjálfar." Margeir segir að hann myndi örugglega mun betur þola þetta allt saman ef hann gæti
bara gleymt hverju stjórnmálamennirnir hefður lofað í síðustu kosningum, eins og allir aðrir
Íslendingar eru svo færir um. Margeir hefur aldrei kosið sitjandi ríkis eða sveitastjórn á
ævinni, þannig að vonbrigði hans eru oftast mikil og heiftarleg þegar kosningar eiga sér stað,
þó hann viðurkenni einnig að verða líka fyrir heiftarlegum vonbrigðum jafnt og þétt gegnum
kjörtímabilin.
| |

Hér sést Margeir í einu af svekkelsisköstum sínum |
Af hverju á fólk hunda? (Uxaskalli 2003)
Njörður Njáll Marðarson, 54 ára, hefur nú lokið við að verja
doktorsritgerð sína í freudískri sálfræði við Minnesota State University
í Bandaríkjunum. Doktorsritgerðin fjallar um sálarlíf og framkomu
hundaeigenda, og varpar að sögn Njarðar nýju ljósi á hegðun þessa hóps.
"Það hefur lítið verið horft á áhrif þess að hundarnir laðast
kynferðislega að eigendum sínum, hversu óaðlaðandi sem öðru fólki finnst
eigendurnir vera." Segir Njörður. "Samkvæmt rannsóknum mínum eru rúmlega
40% hundaeigenda, já, hundaeigendur á einmitt þessum forsendum. Þetta er
þó að sjálfsögðu næstum því aldrei meðvitað."
Mynd: Nú hefur verið sett
leikfang á markaðinn sem gerir þessum einstaklingum
kleift að uppfylla þessa vöntun sína án þess að þurfa að standa í öllu
stússinu sem fylgir því að eiga lifandi hund
| |

|
Davíð Oddsson fær hiksta (Rökkvi 2003)
Snemma í gærmorgun atvikaðist það að forsætisráðherra Íslands,
Davíð Oddsson, fékk vægt hikstakast sem varði í um eina og
hálfa mínútu. "Ég fullvissa ykkur um að ég mun brátt finna
ódæðismanninn sem var að tala illa um mig" sagði Davíð í
greinagóðu viðtali.
Enn hafði enginn játað um 10 leitið
í dag en Davíð er vongóður um árangur. "Ég er búinn að vera að
kalla hina grunuðu inn á teppi einn af öðrum, og það er bara
tímaspursmál hvenær sá seki mun finnast."
Mynd: Hér sést reglustikusafn Davíðs, en það mun gegna lykilhlutverki
í yfirheyrslunum
| |

|
Ameríkani finnur typpið á sér! (Rökkvi 2003)
Sá stórmerkilegi atburður átti sér stað í dag að Michael Walton,
eintak af tegundinni Homo sapiens americanus (eða Bandaríkjamanni),
fann á sér typpið. "Þetta var ótrúleg upplifun"
sagði Walton, en það er afar fáheyrt menn af tegundinni Homo sapiens americanus
séu færir um slíkt.
Bandaríkjamenn (Homo sapiens americanus) eru eins
og flestir vita kominir af Evrópubúum (Homo sapiens europeus), en vegna ólíkra
aðstæðna vestan hafs hófu þeir strax að þróast í aðra átt en forfeður þeirra.
Sú þróun leiddi til mun feitlegra vaxtarlags en hjá Evrópubúum, vegna afar
hás kaloríuinnihalds þeirra fæðu sem fyrirfinnst í Norður-Ameríku. Homo sapiens
americanus urðu þar af leiðandi mjög fljótlega ófærir um að finna á sér typpin.
Í raun var ekki fyrr en nú vitað með vissu hvort tegundin hefði misst þetta líffæri
algerlega, líkt og Homo sapiens europeus missti rófuna á sínum tíma í þróunarsögunni.
Mynd: Auk hjólbarana notaði Mr.Walton fimm spegla við hina vel heppnuðu leit
| |

|
Þorir varla lengur út í búð (Uxaskalli 2003)
Daníel Ormsson, bókbindari, tekur stöðu sína í samfélaginu alvarlega. Daníel
sá nefnilega ljósið eftir að hlusta á Hannes Hólmstein útskýra frjálsan markað og
lögmálið um framboð og eftirspurn.
"Það er búið að opna augu manns fyrir því hversu mikil völd neytendur
hafa - hvernig þjóðfélagið allt stjórnast af því hvaða vörur og þjónustu
maður kaupir." Segir Daníel, "Auðvitað fylgir mikil ábyrgð svona miklum
völdum þannig að manni ber skylda til að kynna sér hvert mál áður en
maður tekur ákvörðun. Ekki vill maður umbuna einhverjum gangsterum og
afætum með því að kaupa af þeim smjör eða tómatsósu."
Daníel hefur því
lagt mikið á sig við að lesa sér til um eigendur og starfsmenn
matvöruverslana, bensínstöðva og bókabúða, svo eitthvað sé nefnt. "Þetta
er auðvitað ógurlegt magn af upplýsingum sem þarf að fara í gegnum áður
en maður svo mikið sem kaupir sér pylsu, en þá kemur aftur á móti að
samviskan er hrein. Það er hreint skelfilegt hvernig sumir neytendur
misbeita valdi sínu."
| | 
Um leið og viðtalinu lauk sökkti Daníel sér ofan í bókhald
sjálfstæðisflokksins.
|
Hræðilegar niðurstöður könnunar Sameinuðu Þjóðanna (Rökkvi 2003)
Kofi Annan var miður sín í dag eftir að Alþjóð heilbrigðisráðið birti
niðurstöður vítækrar könnunar um greindarfar mannkynsins. "Það hefur
komið í ljós að helmingur Jarðarbúa er undir meðalgreind" sagði Kofi
niðurbrotinn. "Þetta þýðir að um 3 milljarðar manns á Jörðinni þjást
af greindarskorti af einhverju tagi."
Eftir þessar óhugnalegu niðurstöður
virðast Sameinuðu Þjóðirnar vera algerlega ráðþrota. "Svona hefur ástandið verið
áratugum saman. Hvernig sem við reynum hefur okkur ekki tekist að breyta þessari
ömurlegu staðreynd. Margar þjóðir hafa reynt menntunar og fræðsluátök, en allt
kemur fyrir ekki, þessi prósenta greindarskertra helst hin sama."
Mynd: Kofi Annan reynir að halda svipnum þó augsýnilega sé hann ekki í rónni >>>>>
| |  |
Amerískir blökkumenn krefjast jafnréttis (Rökkvi 2003)
Jesse Jackson var í miklum ham í dag þar sem hann krafðist sanns jafnréttis fyrir
bræður sína. "Af hverju í andskotanum fær hvítur alltaf að gera fyrst í skák", sagði
Jessi, fullur bræði, "þetta er gróf mismunun gagnvart svörtum!" Jesse og fylgismenn hans
stóðu í þéttri fylkingu fyrir utan Hvíta húsið í allan gærdag til að krefjast að skákreglum
yrði breytt í átt til jafnréttis.
Einnig hefur fylkingin krafist þess að niðrandi málnotkun gagnvart blökkumönnum verði bönnuð.
Blökkumenn í Ameríku hafa lengi verið á móti því að vera kallaðir "black" og vilja vera kallaðir
"Afro-American" í staðinn. Þar af leiðandi hafa fylgismenn Jesse krafist þess að niðrandi orðum
eins og "black hole" (svarthol) og "blackout" yðri tafarlaust breytt í "Afro-American hole" og
"Afro-American out." Einng kröfðust þeir að nafni kvikmyndarinnar "Black beauty" yrði breytt í
"Afro-American beauty" og að það yrði ekki sagt "he´s the black sheep in the familiy" heldur "he´s the
Afro-American sheep in the family."
|
Páfinn hættur þessu bulli (Rökkvi 2003)
| Jóhannes Páll fyrrum páfi var rétt í þessu að segja af sér páfaembættinu og afneita trúnni.
Þetta gerði Jóhannes með orðunum "Ég er hættur þessu bulli." Jóhannes sagðist hreinlega
ekki nenna þessu lengur. "Já, já, þetta er svosem búið að vera ágætt, þessi skrípaleikur
hérna í Vadikaninu, það er náttúrulega viss fílíngur að ganga um í þessum búningum og hrópa
halelúja, en nú er bara komið gott af þessu og tími kominn til að maður fari að gera eitthvað
alverugefið sem skiptir kannski einhverju máli."
|
Aðspurður hvað það hafi verið sem fékk hann til að taka þessa drastísku ákvöðrun sagði hinn
fyrrverandi páfi þetta "Mig langaði nú aðallega að fá mér á broddinn áður en ég drepst úr elli.
Ég get nú ekki farið að deyja hreinn sveinn - einn frægasti maður heims. Það mætti nú fyrr
vera hneysan. Svo er líka pirrandi allt þetta pukur sem maður þarf að viðhafa ef maður vill
gera sjálfsagðan hlut eins og að rúnka sér. Ég var nú líka hundleiður á að predika þetta bull
daginn út og inn. Guð á himnum, hnuss, þessar biblíusögur eru svo helvíti óspennandi og úreltur
viðbjóður. Ef fólk vill almennilega afþreyingu þá getur það bara horft á myndir eins og LOTR
í DVD. Þar er líka fullt af bulli um skrímsli, púka og guði - alveg eins og í biblíunni - nema
bara spennandi."
Jóhannes sagði að það sem fyrir lægi væri augljóslega mikið sukk, svall og kvennafar, eitthvað sem
hann hafi alltaf langað að gera öll þessi löngu ár "klæddur í þessi asnalegu föt alltaf" eins og
hann orðaði það sjálfur.
"Já ég ætla sko beint á næsta bar, drekka mig pissfullan, finna tvær gellur og bjóða þeim í
heilaga þrenningu með mér." Við óskum hinum fyrrverandi páfa góðs gengis. Það er greinilega satt
að það er aldrei of seint að lifa lífinu.
|
 Við munum ekki sjá Jóhannes
í þessum fötum aftur |
Árni Johnsen lærir að hætta að stela (Rökkvi 2003)
Árni Johnsen hefur snúið við blaðinu og segist vera alveg hættur að stela.
"Já ég hef lært mína lexíu" sagði Árni í einlægu viðtali við okkur.
"Þetta gerðist hérna inni á Kvíabryggju þegar við vistmennirnir vorum saman
í sturtu. Einn félaga minna misti þarna gullhálsmen á gólfið og ég beygði mig
eftir því til að hnupla því. Þessu sá ég samstundis eftir. Ég get ekki sagt annað en að ég
hafi á því augnabliki
lært að það getur haft afar slæmar afleiðingar að stela. Nú hef ég lært mína
lexíu og mun aldrei stela aftur."
Árni segist aftur á móti vera búinn að læra að gefa í staðinn fyrir að stela, enda
gaf hann Grudfirðingum nýlega glæsilegt pappamassalistaverk, sem hann bjó til í
föndurstundunum á Kvíabryggju. "Það er sælla að gef en stela" sagði Árni, breyttur maður.
|
100% öryrki gengur í Sjálfstæðisflokkinn (Rökkvi 2003)
Vilhjálmur Eiríksson, öryrki, skráði sig formlega inn í
Sjálfstæðisflokkinn í dag. "Þetta hefði ég átt að vera búinn að
gera fyrir löngu" sagði Vilhjálmur í fjörugu
viðtali.
"Það var bara ekki fyrr en ég sá viðtal við
Pétur Blöndal núna nýlega í sjónvarpinu þar sem ég fattaði hvernig lág
í málunum. Eins og Pétur segir, þá er náttúrulega bara rugl að við séum
að sóa öllum þessum skattpeningum í einhverja helvítis aumingja."
Vilhjálmur
segir að ein stærsta hvatning hans til að styðja D-listann sé hvað hann langi mikið
að kaupa sér
DVD spilara."Já, það er sko ekki séns að ég sé eitthvað að meika það að vera
að borga einhvern himinháan skatt af þessum litlu örorkubótunum sem ég fæ, bara
til að dúlla undir rassgötin á einhverjum aumingjum í samfélaginu. Það er sko
dýrt að kaupa sér góðan DVD spilara, svo ég ætla ekkert að horfa upp á einhverja
kommúnista henda peningunum mínum í einhverjar blóðsugur, þegar ég gæti annars keypt
LOTR special edition double pack fyrir þá."
|
|

Mynd: Vilhjálmi leiðist stundum soldið og vildi gjarnan eiga
DVD spilara
til að stytta sér stundir.
|
|
| |