Pink Flamingos [*****] (fáanleg í Laugarásvideo)
John Waters

       Eitthvað sem orð fá ekki lýst! Ekki fyrir veikar taugar! Myndin fjallar um viðurstyggilegustu manneskju heims: Divine og hans fríða fylgdarlið. Divine er í felum vegna frægðar sinnar til að fá að vera í friði fyrir óðum aðdáendum. "Hún" var nefnilega kosin "The filthiest person alive" og þeim titli hlýtur alltaf að fylgja gífurleg frægð og aðdáun.
       Vandamál Divine eru hins vegar vondu Marble hjónin, sóðalegt perrapar sem öfundar Divine af frægð hennar og vill gera allt til að sölsa undir sig titilinn hennar, "the filthiest person alive." Marble hjónin þessi ná að finna Divine og leggja út í heiftúðlegt stríð við hana. En eins og Divine sýnir þeim í þessari mynd, þá þarf meira en að flassa nokkrar menntaskólapíur með pylsu bundna við typpið á sér til að vera "the filthiest person alive!".
Þessi mynd er sannkölluð "Divine" inspiration!

-Rökkvi