Cult 2 videospólan komin út:
Cult 2 videospólan er nú komin á videoleigurnar Laugarásvideo,
James Bönd, Videoheima, Sesar video, Tröllavideo og Nexus. Hún
er líka til sölu á Videosafnaranum og í Geisladiskabúð Valda. Cult 2 inniheldur
5 frábærar íslenskar stuttmyndir, fullar af húmor og látum.
Cult 2 er önnur videospólan í Cult seríunni, en Cult 1 kom út
árið 2002 og inniheldur líka 5 íslenskar stuttmyndir. Allar myndirnar
á báðum spólunum eru einhverskonar cult myndir.
Cult serían er gerð til þess að koma íslenskum neðanjarðar kvikmyndargerðamönnum
í sviðsljósið. Myndirnar á spólunum eru hasarmyndir, grínmyndir, hryllingsmyndir,
splattermyndir eða að minnsta kosti eitthvert form af góðri afþreyingu og sannri
lágmenningu. Lesið um myndirnar á Cult 2 hér fyrir neðan.
| |

|
The Formula [***] (fáanleg í Laugarásvideo)
Mynd eftir: Helga Má Erlingsson og Kristján H. Árnason
Er á videospólunni Cult 2
Slagsmála og action mynd um glæpon sem brýst inn í höfuðstöðvar Coca Cola
og stelur Coke formúlunni. Til þess að komast út úr byggingunni þarf hann
hins vegar að berjast við starfsmennina. Þetta er stutt og laggóð mynd með
engu tali, hún snýst algerlega um slagsmálasenurnar. Þær eru hins vegar ferkar
góðar og gaman að horfa á þær.
|
|  |
Mamma þín er með buxurnar í hnút [***] (fáanleg í Laugarásvideo)
Mynd eftir: Helga Má Erlingsson
Er á videospólunni Cult 2
Alger rugl og bullmynd um tvo spæjara sem fást við morðmál. Myndin er sýnd á
auknum hraða og talið er það líka, sem gerir myndina almennt kómískari. Þetta
er mjög svo viljandi alger b-mynd með húmorinn í fyrirrúmi.
Öll atriðin eru
viljandi ýkt og óraunveruleg, á mjög fyndinn hátt. Þarna er líka skemmtilegum
dónahúmor bætt inn í þar sem við á. Í heildina drephlægileg mynd sem gengur hratt
þannig að það er engin hætta á að missa athyglina.
|
|  |
Kapteinninn [***½] (fáanleg í Laugarásvideo)
Mynd eftir: Snorra B. Jónsson og Árna Árnason
Er á videospólunni Cult 2
Þetta er grínmynd um ofboðslega sjálfumglaðann flugstjóra sem finnst hann vera
mesti töffari í heiminum. (Reyndar er kannski ekkert óalgengt að flugstjórar hafi
gott álit á starfi sínu).
Þessi mynd er þegar orðin hálfgert legend innan flugmannastéttarinnar, en er ekki
síður drepfyndin fyrir fólk utan stéttarinnar. Þarna fylgjumst við með einum vinnudegi
hjá Kapteininum, þar sem hann er að springa úr töffaraskap, reyna við flugfreyjuna og gera
lítið úr aðstoðarflugmanninum allan daginn. Þetta er líka frekar vönduð mynd með flottum
tökum.
| |

|
WD-40 [****] (fáanleg í Laugarásvideo)
Mynd eftir: Helga Má Erlingsson og Gunnar Magnús Sch. Th.
Er á videospólunni Cult 2
Þetta er sönn b-mynd með öllu því sem góð b-mynd á að hafa.
Aðalsögupersónan var á svaðalegu fylleríi í vinnupartýi kvöldið
áður og man ekkert hvað hann gerði. Hann hrekkur upp um morguninn
við það að hann er sakaður um að hafa sofið hjá dóttur forstjórans.
Þetta þýðir að eiga á hættu að verða annað hvort rekinn af forstjóranum,
drepinn af kærasta dóttur hans eða bæði.
Myndin er ofboðslega mikil b-mynd á drepfyndinn hátt. Öll action atriði
eru fáránlega ýkt sem gerir þau ótrúlega skemmtileg. Húmorinn er frábær
í myndinni. Við fáum líka að sjá mjög skemmtilega bílasenu, með
viðeigandi árekstrum og áhættuariðum eins og að slást á þakinu á bíl á ferð.
Þetta er hiklaust uppáhalds myndin mín á Cult 2 spólunni.
|
Kristín Diljá [**½] (fáanleg í Laugarásvideo)
Mynd eftir: Snorra B. Jónsson
Er á videospólunni Cult 2
Stutt hryllingsmynd um litla stelpu sem er haldin illum öndum og er að gera stóra
bróður sinn brjálaðann. Það er ekkert tal í myndinni en hins vegar afar truflandi,
geðveikisleg tónlist sem gefur henni drungalegt yfirbragð. Þótt þetta sé ódýr og
frekar einföld mynd, nær hún að virka vel sem hryllingsmynd því hún er verulega óþægileg
og truflandi að horfa á. Ég myndi líka segja að það sé nokkuð gott afrek að geta látið
svona mynd ganga upp með svona ungum leikurum.
|
-Rökkvi
|